Spurt er hvort leyft yrði að byggja tveggja hæða viðbyggingu við austurhlið einbýlishúss á lóð nr. 12 við Háagerði. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 24. maí 2012 og 28. september 2012 fylgja erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 22. maí 2012 Einnig fylgja athugasemdir arkitekts við umsögn skipulagsstjóra dags. 27. ágúst 2012.
Svar
Jákvætt. Með vísan til skilyrða í umsögn skipulagsstjóra dags. 22. maí 2012. Byggingarleyfisumsókn sem unnin yrði í samræmi við umsögn yrði grenndarkynnt.