Sótt er um leyfi til að klæða gafla og suðausturhlið með sléttri álklæðningu, til að stækka opnanleg fög í gluggum svefnherbergja og til að byggja skyggni yfir efstu svalir á fjölbýlishúsi nr. 40-42 á lóð nr. 30-52 við Flúðasel. Erindi fylgir ástandsskýrsla frá Verksýn dags. í janúar 2009, yfirlýsing frá Verksýn um ástand útveggja dags. 24. janúar 2012 og samþykki sumra meðeigenda (8/12) dags. 11. apríl 2012. Gjald kr. 8.500
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Leggja skal fram fundargerð frá löglega boðuðum húsfundi þar sem málið var til umfjöllunar.