Sótt er um leyfi til að byggja við til norðurs, dýpka kjallara, hækka útveggi, færa inngang og gera portbyggt ris á einbýlishúsið á lóð nr. 18A við Grettisgötu. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 28. mars 2012, samþykki meðeigenda áritað á uppdrátt, umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 29. mars 2012 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 23. apríl 2012. Stækkun: Kjallari 9,9 ferm., 1. hæð 9,9 ferm., ris 35,4 ferm. Samtals: 69,4 ferm., 200,5 rúmm. Gjald kr. 8.500 + 17.043
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.