Sótt er um samþykkt á reyndarteikningu þar sem gerð er grein fyrir áður gerðum breytingum, m. a. að stækka aukaíbúð á 1. hæð yfir í óuppfyllt sökkulrými og fjölga gluggum á norðurhlið 1. hæðar tvíbýlishúss á lóð nr. 7 við Dofraborgir. Erindi fylgir þinglýstur kaupsamningur dags. 5. mars 2012. Stærð: Stækkun íbúð 1. hæð 34,9 ferm., 94,2 rúmm. Gjald kr. 8.500 + 8.007
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.