Spurt er hvort leyft yrði að koma fyrir svalalokunum eins og sýnt er á meðfylgjandi mynd og hvort leyft yrði að byggja garðskála við íbúðir á 1. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 2-20 við Þórufell. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 10. febrúar 2012 ásamt umsögn skipulagsstjóra 13. febrúar 2012 fylgir erindinu.
Svar
Ekki er gerð athugasemd við erindið með vísan til skilyrða í umsögn skipulagsstjóra dags. 13. febrúar 2012. Sækja þarf um byggingarleyfi.