Sótt er um leyfi til breytinga á nýsamþykktu erindi, BN043839,sem felast í að snúa hurð út úr sal þannig að hún opnist út, bæta við björgunaropi í n-austurhorni og breyta brunamerkingu í veitingahúsi á 1. hæð í húsi á lóð nr. 13 við Pósthússtræti. Gjald kr. 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.