Spurt er hvort leyft yrði að breyta íbúðarherbergjum í sameign í íbúð á jarðhæð fjölbýlishúss nr. 12-12A á lóð nr. 2-34 við Hraunbæ. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 18. nóvember 2011 ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 21.11.2011 fylgja erindinu.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum með vísan til umsagna skipulagsstjóra dags. 18. nóvember 2011.