Sótt er um samþykki á áður gerðum breytingum sem felast í að færa þvottahús í rými þar sem kyndiklefi var og opna út með hurð, grafa frá henni og byggja tröppur og breyta upprunalegu þvottahúsi í alrými í kjallara með hurð inn í þvottahús í íbúðarhúsi á lóð nr. 3 við Vífilsgötu. Samþykki meðeigenda er á teikningu. Gjald kr. 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.