Sótt er um leyfi til að byggja staðsteyptan bílskúr á lóð fjölbýlishúss á lóð nr. 20 við Mávahlíð. Erindi fylgir samþykki lóðarhafa Mávahlíðar 22 dags. 22. ágúst 2011 og þinglýst eignaskiptayfirlýsing dags. 1. desember 2000. einnig samþykki lóðarhafa í Mávahlíð 18, 20 og 22 árituð á uppdrátt dags. 5. september 2011. Einnig fylgir erindi jákvæð fyrirspurn dags. 23. ágúst 2011 og samþykki meðeigenda dags. 24. og 27. júlí 2011 sem fylgdu með fyrirspurn. Stærð: 27,2 ferm., 79,1 rúmm. Gjald kr. 8.000 + 6.328
Svar
Frestað. Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 10-01 og 10-02 dags. 5. september 2011.