Sótt er um leyfi til að rífa gamlan skúr og byggja bílskúr úr timbri á steyptum undirstöðum með bárujárnsþaki á lóð nr. 23 við Bræðraborgarstíg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 19. ágúst 2011 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 19. ágúst 2011. Niðurrif: 17,25 ferm., 36,3 rúmm. Bílskúr: 40,5 ferm., 121,5 rúmm. Gjald kr. 8.000 + 8.000 + 9.720
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.