Spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu við suðurhlið og tvöfaldan bílskúr norðvestan megin við einbýlishús á lóð nr. 2 við Litlagerði. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 19. ágúst 2011 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 18. ágúst 2011.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum og með vísan til athugasemda í umsögn skipulagsstjóra. Berist byggingarleyfisumsókn verður hún grenndarkynnt.