Sótt er um leyfi til að innrétta gististaður flokki II með fimm útleigueiningum og íbúð eiganda í risi og til að síkka glugga, lækka gólf og gera nýjan útgang úr kjallara einbýlishúss á lóð nr. 27 við Sóleyjargötu. Málinu fylgir umsögn skipulagsstjóra vegna fyrirspurnar BN043319 dags. 25. júlí 2011. Stækkun: 30,9 rúmm. Gjald kr. 8.000 + 2.472
Svar
Frestað. Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta 01 - 05 dags. 18 júlí 2011, síðast breytt 4. ágúst 2011.