Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi innanhúss og byggja úr stáli og steypu svalir og anddyri við kjallara íbúðarhússins á lóð nr. 15 við Þórsgötu. Meðfylgjandi á teikningu er samþykki meðeigenda, einnig eignaskiptayfirlýsing dags. 4. júní 2008. Svalir og anddyri er skv. breyttu skipulagi birt í B-deild 17. maí 2011. Stækkun 5,9 ferm., 13,6 rúmm. Gjöld kr. 8.000 + 1.088