Sótt er um leyfi til að fjarlægja blikkflasningar sem eru farnar að ryðga og klæða létta útveggi með álklæðningu sem fest er á festileiðara á fjölbýlishúsum nr. 40, 40A og 40B á lóð nr. 40-40B við Skúlagötu. Umsögn burðarvirkishönnuðar fylgir dags. 20. júlí 2011 og sérteikningar með deiliteikningum 1-3 og 4-5 dags. 3. maí 2011 fylgja erindi. Gjald kr. 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.