Sótt er um leyfi til að stækka efri hæð með því að byggja milliloft í suðurhluta húss, innrétta verkstæði á neðri hæð suðurhluta, skrifstofur í norðurhluta og á efri hæð, og til að koma fyrir lyftu í stigahúsi atvinnuhúss á lóð nr. 10 við Síðumúla. Jafnframt er erindi BN038393 fellt úr gildi. Stækkun: 105,3 ferm. Gjald kr. 8.000
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði. Samkvæmt gögnum embættisins er lágmarksgjald ógreitt.