Spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu á skipulögðum bílskúrsreit við raðhúsið á lóð nr. 39 við Háagerði. Til vara er spurt hvort byggja megi bílskúr sem innangengt væri í og notaðist til íbúðar á sömu lóð. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 20. maí 2011 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 19. maí 2011.