Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og staðsetningu útihurða á suður- og vesturhlið rýmis 0101 í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 5 við Skeifuna. Samþykki eigenda rýmis 0101 dags. 11 jan. 2011 og meðeigenda dags. 19. jan. 2011 fylgir. Gjald kr. 8.000 kr.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.