Sótt er um leyfi fyrir þegar gerðri viðbyggingu í innskoti á austurhlið, breyttu skipulagi innanhúss, breytingum og síkkun á gluggum og byggingu skjólveggja og setlaugar í garði og á lóðamörkum við einbýlishús nr. 14 á lóð nr. 10-16 við Bjarmaland. Meðfylgjandi er bréf byggingatæknifræðings vegna breytinga dags. 6. janúar 2011. Stækkun: 17,7 ferm., 55,75 rúmm. Gjald kr. 8.000 + 4.460
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160/2010. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.