Sótt er um samþykkt á áður gerðum breytingum, m. a. er fyllt upp í útigeymslu (0002), sjá erindi BN035330, bætt við gönguhurð í bílskúr, gönguhlið sett í garðvegg og setlaug er færð inn á pall og hæðarlegu hans breytt við einbýlishúsið á lóð nr. 68 við Laufásveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 6. janúar 2011 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 4. janúar 2011. Gjald kr. 7.700
Svar
Synjað. Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra frá 4. janúar 2011.