Sótt er um leyfi til að lækka gólf kjallara í mhl. 02, innrétta nýtt eldhús fyrir veitingahúsið og sæti fyrir 24 gesti, koma fyrir útloftunarröri og sameina matshluta 01 og 02 í veitingahúsinu á lóð nr. 55 við Laugaveg. Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 24. nóvember 2010. Stækkun: 33,4 rúmm. Gjald kr. 7.700 + 2.572
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.