Sótt er um leyfi til niðurrifs skíðaskála Knattspyrnufélags Reykjavíkur með landnúmer 125756 í Skálafelli. Gert er ráð fyrir að farga skálanum í eldi og nota tækifærið til æfinga fyrir SHS. Meðfylgjandi eru tölvupóstar milli Jónasar Kristinssonar og Jóns Fr. Jóhannssonar SHS ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 12. nóvember 2010. Stærðir: 364 ferm., 1.016 rúmm. Gjald kr. 7.700
Svar
Frestað. Vantar umsögn Minjasafns Reykjavíkur. Málið enn í fresti hjá skipulagsstjóra.