Sótt er um leyfi til að breyta notkun 1. hæðar í kaffihús í flokki II í húsi á lóð nr. 7 við Aðalstræti. Bréf frá eigendum Vallarstræti 4 fylgir dags. 7. og 14. okt. 2010 fylgir erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 12. nóvember 2010. Gjald kr. 7.700
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.