Spurt er hvort leyfi fengist til að stækka svalir, koma fyrir stiga af svölum niður af sólpalli, breyta glugga í svalahurð, þvottahúsglugga breytt í hurð og setja upp arinn í stofu með reykröri í einbýlishúsinu á lóð nr. 46 við Baughús. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 22. október 2010 fylgir erindinu.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum, enda verði sótt um byggingarleyfi og því fylgi samþykki aðliggjandi lóðarhafa vegna útitrappa.