Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. október 2010 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að innrétta veitingastað í flokki I sem á að hafa aðstöðu fyrir 50 manns í sæti í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 17 við Ármúla. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 8. október 2010 fylgir erindinu.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.