Sótt er um leyfi til að rífa núverandi bílskýli mhl 70 og byggja staðsteypt bílskýli sem verður mhl 2 og verður tengt bílskýli nr. 4 á lóð nr. 6 við Sigluvog. Jákvæð fyrirspurn BN041810 dags. 20. júlí 2010 fylgir málinu og er tengt máli BN041964. Niðurrif: Bílskúr 27,7 ferm., 72,0 rúmm. Stærð: Nýr bílskúr 50,0 ferm., 182,5 rúmm. Gjald kr. 7.700 + 14.053
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Að fengnu samþykki nágranna og lagfæringu uppdrátta verður málið grenndarkynnt.