Sótt er um leyfi fyrir þegar gerðum breytingum, grafið út úr geymslu, þvottahús og geymsla fært þangað, komið fyrir nýrri snyrtingu, gluggi stækkaður á suðurhlið og nýr gluggi ásamt ljóskassa sett á norðurhlið í kjallara húss nr. 74 á lóð nr. 66 - 82 við Tunguveg. Samþykki meðeigenda fylgir ódags. Bréf frá eiganda fylgir ódags. Stækkun: 20 ferm., 43 rúmm. Gjald kr. 7.700 + 3.311
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.