Sótt er um leyfi til að koma fyrir svalaskýlum úr stálstyrktum PVC prófílum og öryggisgleri á 7 íbúðum 2. og 3. hæðar fjölbýlishúss nr. 14 og 16 á lóð húss nr. 14-18 við Hörðaland. Samþykki allra íbúa á Hörðalandi 14-18 fylgir með sem og eldvarnarúttektarskýrsla verkfræðings dags. 6.7.2010. Stærðir 52,5 ferm., 136,8 rúmm. Gjald kr. 7.700 + 10.534
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.