Sótt er um leyfi til að fjarlægja utanáliggjandi tröppur, grafa frá húsi, byggja svalir á 2. hæð, gera nýjan inngang á jarðhæð og sótt um leyfi fyrir áður gerðri íbúð á 0201 á 2. hæð með sýndum breytingum af fjölbýlishúsi á lóð nr. 53B við Grettisgötu. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 1. júní 2010 fylgir. Niðurrif: 4,0 ferm., 10,6 rúmm. Gjald kr. 7.700