Spurt er hvort leyft yrði að fjarlægja utanáliggjandi tröppur, grafa frá húsi og gera nýjan inngang á jarðhæð og hvort ósamþykkt íbúð á 2. hæð fengist samþykkt með sýndum breytingum af fjölbýlishúsi á lóð nr. 53B við Grettisgötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 30. apríl 2010 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 29. apríl 2010.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi. Uppfylla þarf þau skilyrði sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.