Sótt er um leyfi til að byggja fimm íbúða fjölbýlishús úr forsteyptum einingum með utanáliggjandi stiga, kjallari og þrjár hæðir á lóð nr. 17 við Klapparstíg. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 8. mars 2010 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 19. mars 2010. Stærðir: Kjallari 68,3 ferm., 1. hæð 138,3 ferm., 2. hæð 152 ferm., 3. hæð 152 ferm. A-rými samtals: 510,6 ferm., 1.768,1 rúmm. B-rými samtals: 59,6 ferm. Samtals 570,2 ferm., xx rúmm. Gjald kr. 7.700 + xx
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Minnka verður húsið þar sem nýtingarhlutfall er 1,35 en á að vera 1,25 mest.