Sótt er um leyfi til breytinga innanhúss sem felast í að í kjallara er æfingasal breytt í sýningasal fyrir 96 gesti, á 1. hæð eru stólar fyrir 137 gesti fyrir starfsemi Þjóðleikhússins og fyrirhugaður flóttastigi á vesturhlið og hurð fellt út í íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar á lóð nr. 7 við Lindargötu. Meðfylgjandi er bréf eldvarnahönnuðar dags. 25.5. 2010. Gjald kr. 7.700 + 7.700
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.