Sótt er um leyfi til að innrétta hluta kjallara sem bílgeymslu fyrir tvo bíla, til að koma fyrir lyftu, til að útbúa nýjan inngang í apótek frá stigahúsi og til að breyta innra fyrirkomulagi verslunar- og skrifstofuhússins á lóð nr. 1-3 við Réttarholtsveg. Erindi fylgir bréf umsækjanda dags. 20. janúar 2010. Einnig fylgir yfirlýsing um eignarhald dags. 20. janúar og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 9. febrúar 2010. Gjald kr. 7.700