Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum kjallara og til að byggja geymslu undir verönd, grafa frá kjallara, koma fyrir gluggum á kjallara og til að byggja skjólvegg við verönd raðhússins nr. 67 á lóðinni nr. 59-75 við Álftamýri. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 15. janúar 2010 fylgir erindinu sem og samþykki meðlóðarhafa á nr. 59-75 dags. 24.9.2009 og nágranna á nr. 69 vegna skjólveggjar. Áður gerð stækkun kjallara við byggingu hússins 48,5 ferm., 127,8 rúmm. Stækkun geymsla undir verönd: 17,1 ferm., 43,9 rúmm. Samtals húsið eftir stækkun 295,3 ferm., 890,1 rúmm. Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 13.221
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.