Sótt er um leyfi til að breyta í gistiheimili kjallara og 1. hæð fjölbýlishússins á lóð nr. 3 við Bræðraborgarstíg. Grenndarkynning stóð frá 15. maí til og með 16. júní 2009. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Ingibjörg Helgadóttir og Árni Björnsson dags. 25. maí 2009. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 13. júlí 2009. Gjald kr. 7.700 + 7.700
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.