Vegna gerðar eignaskiptayfirlýsingar er sótt um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi matshluta 01 og 02 og jafnframt gerð grein fyrir þremur áður gerðum séreignum, tveimur í kjallara matshluta 01 (eign 0001-íbúð og eign 0002-ósamþykkt íbúð) og einni í matshluta 02 (eign 0107-séreign) á lóðinni nr. 4 við Óðinsgötu. Skoðunarskýrslur byggingarfulltrúa (vegna eignar 01-0002 dags, 28. maí 2010 og eignar 02-0107 dags. 28. maí 2010 fylgja erindinu. Afsalsbréf dags. 16. ágúst 1991 (vegna eignar 01-0001), 14. apríl 2000 (vegna eignar 02-0107) og 22. september 2004 (vegna eignar 01-0002) fylgja erindinu.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.