Sótt er um leyfi til þes að setja upp svalir við suðurhlið á 2. hæð fjölbýlishússins á lóð nr. 52 við Hverfisgötu. Samþykki eigenda Vatnsstígs 4, með skilyrðum, innfært 23. maí 2002 ásamt umsögn brunahönnuðar dags. 21. september 2007 fylgja erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 20. ágúst 2010 og 24. sept. 2010 ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 21. sept. 2010. Gjald kr. 6.800
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og umsagnar skipulagsstjóra vegna málsins. Þinglýsa skal kvöðum og samþykki á báðar lóðir, þ.e. Hverfisgötu 52 og Vatnsstíg 4 svo unnt sé að afgreiða málið.