Síðast Samþykkt á fundi fyrir 14 árum síðan.
Annað
Fyrirspurn
9.liður úr fundargerð SBH frá 1. mars sl. Tekið til umræðu skipulag svæðis vestan Straumsvíkur sem frestað var til 4 ára í Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025. Frestunin rennur út 18.05.11. Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa frestun á aðalskipulagi svæðisins enn um 4 ár skv. heimild í 33. grein skipulagslaga nr. 123/2010, og vísar málinu að öðru leyti til endurskoðunar Aðalskipulags Hafnarfjarðar sem Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti 30.06.10 að hafin skyldi vinna við. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að auglýsa frestun á hluta Aðalskipulags Hafnarfjarðar 2005 - 2025, svæði vestan Straumsvíkur, enn um 4 ár skv. heimild í 33. grein skipulagslaga nr. 123/2010." fundargerð SBH frá 1.mars sl.
Svar

Gunnar Axel Axelsson tók til máls.   Bæjarstjórn samþykkti framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.