2.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 2.nóvember sl.
Lögð fram tillaga vegna breytinga á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025. Breytingin snýr að landnotkun. Umsagnir vegna lýsingar lagðar fram. Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að aðalskipulagsbreytingu með vísan til skipulagslaga og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
Svar
Til máls tekur Ingi Tómasson.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.