5.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 23.febrúar sl.
Jóhann Ögri Elvarsson og Rut Helgadóttir sækja þann 11.2.2021 um leyfi fyrir byggingu parhúss á einni hæð. Um frávik á gildandi deiliskipulagi er nær til lóðarinnar Völuskarð 18 að ræða. Skipulags- og byggingarráð samþykkir frávik á gildandi deiliskipulagi sbr. 3. mgr. 43. gr. og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Svar
Ingi Tómasson tekur til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.