Pétur Ólafsson byggverktak ehf.
sækja 7.2.2020 um fjölgun eigna skv. teikningum Kára Eiríkssonar dagsettar 5.2.2020. Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarráðs þann 28.01.sl. var tekið jákvætt í fyrirspurnarerindi vegna fjölgunar eigna ásamt stækkun lóðar. Samþykkt var á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa að grenndarkynna erindið í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga. Lóðarhafi þeirra lóða sem grenndarkynningin nær yfir er Hafnarfjarðarkaupstaður.
Svar
Skipulags- og byggingarráð samþykkir erindið og fellur frá grenndarkynningu sbr. 3.mgr. 44.gr. skipulagslaga.