Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi mætir til fundarins. 13.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 26.júní sl.
Breyting á deiliskipulagi vegna lóða við Suðurgötu tekin fyrir að nýju.
Komið hefur verið til móts við athugsemdir vegna deiliskipulagstillögunnar þar sem fyrirhuguð lóð við Suðurgötu 46 er felld út og þess í stað rýmkað fyrir og komið fyrir fleiri bílastæðum innan lóðar við Suðurgötu 44. Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyri þær breytingar sem gerðar hafa verið á deiliskipulagstillögunni vegna Suðurgötu 40 - 44 og leggur til við bæjarstjór:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytt deiliskipulag vegna Suðurgötu 40-44".
Svar
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir breytt deiliskipulag vegna Suðurgötu 40-44.
Fulltrúi Samfylkingar ítrekar bókun sína undir 3. lið.