Tekin fyrir á ný fyrirspurn
Þrastarverks ehf.
dags. 12.09.2017 til skipulags- og byggingarráðs ásamt bréfi dags. 09.09.2017 um að bifreiðageymslu í kjallara verði sleppt. Skipulags- og byggingarráð óskaði eftir umsögn skipulagshöfunda um fyrirliggjandi fyrirspurn á fundi sínum þann 31.10.2017. Lögð fram umsögn skipulagshöfunda dags 08.11.2017.
Svar
Skipulags- og byggingarráð samþykkir umsögn skipulagshöfunda, og vísar áframhaldandi vinnslu umsóknarinnar til afgreiðslu byggingarfulltrúa.