11.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 20.apríl sl.
Lagt fram bréf þar sem fram kemur að lóðarhafar að 50% hluta að parhúsalóðinni Móbergsskarð 10,óska eftir að afsala sér sínum hluta parhúsalóðarinnar. Lögð fram lóðarumsókn um 50% lóðarinnar Móbergsskarð 10 frá Víði Inga Ívarssyni. Lóðarhafar Jórunn og Sigurður hafa samþykkt Víði Inga sem nýjan meðbyggjanda. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að úthlutun 50% lóðarinnar Móbergsskarð 10 til Jón B. Björgvinssonar og Halldóru Oddsdóttur verði afturkölluð. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að úthluta 50% lóðarinnar Móbergsskarði 10 til Víðis Inga Ívarssonar.
Svar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að úthlutun 50% lóðarinnar Móbergsskarð 10 til Jón B. Björgvinssonar og Halldóru Oddsdóttur verði afturkölluð.
Jafnframt samþykkt samhljóða að 50% lóðarinnar Móbergsskarði 10 verði úthlutað til Víðis Inga Ívarssonar.