Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 645
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir á ný fyrirspurn Húsfélagsins Skipalóni 5 dags. 07.06.2017 varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir á lóðinni Skipalón 3. Skipulags- og byggingarráð beindi tilmælum til lóðarhafa, Skipalóns 7 ehf, á fundi sínum þann 03.10.2017 um að núverandi ásigkomulag lóðar væri óásættanlegt og vakti jafnframt athygli á þeim tímamörkum sem er að finna í 8. gr. lóðarsamnings. Lagður fram tölvupóstur dags. 19.3. s.l. þar sem lóðarhafi, Skipalón 7 ehf, óskar eftir mánaðarfresti til að gera grein fyrir nýtingu lóðarinnar.
Svar

Skipulags- og byggingarráð veitir umbeðinn frest en ítrekar þau tímamörk sem koma fram í 8. gr. gildandi lóðarleigusamnings.