Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 360
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram bréf Snorra Hafsteinssonar f.h. Rafhitunar ehf. dags. 04.05.11, þar sem svarað er athugasemd varðandi slæma umgengni á lóðinni.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi bendir á að lóðin er óskipt sameign og allir bera þar jafna ábyrgð. Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur til að lóðinni verði skipt upp og óskar eftir tillögu að þeirri útfærslu. Berist hún ekki innan 2 mánaða mun skipulags- og byggingarfulltrúi gera tillögu að uppskiptingu.