Síðast Samþykkt á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 271
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir tillögur að breytingum á deiliskipulagi Valla 3. áfanga fyrir lóðina Drekavelli 9, lóð Hraunvallaskóla. Lagt er til að gerður verði byggingarreitur fyrir færanlegar leikskólastofur á lóðinni. Lagðar fram tillögur skipulags- og byggingarsviðs að staðsetningu ásamt kostnaðarmati framkvæmdasviðs. Guðrún Sturlaugsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir komu á fundinn frá leikskóla og grunnskóla. Magnús Baldursson sviðsstjóri fræðsluráðs og Svanlaugur Sveinsson framkvæmdasviði mættu einnig.
Svar

Óskað var eftir umsögn skólayfirvalda fyrir næsta fund ráðsins og skipulags- og byggingarsviði falið að kynna málið nánar fyrir þeim. Afgreiðslu frestað til næsta fundar.