Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 516
Annað
Fyrirspurn
Á Steinhellu 4 sem er á iðnaðarsvæði eru skráðar 6 eignir á bst/mst 4 og 8, þrátt fyrir að húsið er risið. Fokheldisúttekt var framkvæmd 04.03.11 en synjað þar sem eldvarnarveggi vantaði. Einnig vantar lokaúttekt. Frestur var veittur síðast til 01.06.2012. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 18.09.13 eiganda skylt að sækja um lokaúttekt innan 4 vikna. Yrði ekki brugðist við erindinu mundi skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæðum laga um mannvirki nr. 160/2010 til að knýja fram úrbætur. Í síðustu viku gerði skipulags- og byggingarfulltrúi byggingarstjóra skylt að sækja um lokaúttekt innan fjögurra vikna, en komið hefur í ljós að hann hefur skráð sig af verkinu. Stöðuúttekt fór fram. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 26.02.14 þinglýstum eigendum skylt að ráða nýjan byggingarstjóra innan 4 vikna, sem sæki um lokaúttekt á húsinu. Ekki hefur verið brugðist við erindinu.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi mun leggja dagsektir á eigendur og byggingarstjóra í samræmi við 56. grein laga um mannvirki verði ekki brugðist við erindinu innan 4 vikna.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 189893 → skrá.is
Hnitnúmer: 10075945
Síðasta markaðsverð
13.000.000 kr.
Atvinnuhúsnæði · 209 m² · 27.12.2012
Kaupskrá 6 eignir
13.000.000 kr. 27.12.2012
Atvinnuhúsnæði · 209 m² · HMS
38.200.000 kr. 19.12.2012
Atvinnuhúsnæði · 630 m² · HMS
38.200.000 kr. 19.12.2012
Atvinnuhúsnæði · 630 m² · HMS
38.200.000 kr. 19.12.2012
Atvinnuhúsnæði · 630 m² · HMS
26.000.000 kr. 03.08.2012
Atvinnuhúsnæði · 424 m² · HMS
… og 1 eign til viðbótar
Deiliskipulag
Hellnahraun, 1. áfangi
Samþykkt 16.05.2000 · Deiliskipulag. Nýtt DSK