Síðast Samþykkt á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 255
Samþykkt
Fyrirspurn
Teknar fyrir á ný tillögur skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina, sem heimili viðbyggingu að lóðamörkum Brekkugötu 26. Skipulags- og byggingarsvið greinir frá viðræðum við málsaðila.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að senda tillögu nr. 1 í grenndarkynningu skv. 2. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð telur að tillaga nr. 2 með niðursökktum kjallara komi ekki til greina sökum ósamræmis við aðliggjandi byggð hvað varðar byggingarmagn og aðlögun að byggðinni í kring.