Skipulags- og byggingarfulltrúi bendir á að frágangur húss hefur dregist úr hömlu og að lóðin er ekki geymslustaður fyrir vinnuskúra og timbur. Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir kr. 20.000 á dag á byggingarstjóra sem er skráður eigandi hússin frá og með 1. júlí 2014 í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 hafi byggingarstjóri/eigandi ekki fjarlægt gám, vinnuskúr og timbur fyrir þann tíma.