Skipulags- og byggingarráð gerir lóðarhafa skylt að fjarlægja umrædda hluti af lóðinni innan fjögurra vikna, í samræmi við grein 68.6 í byggingarreglugerð nr. 441/1998. Verði ekki brugðist við því innan þess tíma mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um beitingu dagsekta í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.